Hoppa yfir valmynd

Skipulag

Matvælaráðuneytið samanstendur af þremur  fagskrifstofum og tveimur stoðskrifstofum sem starfa þvert á ráðuneytið.

Fagskrifstofur matvæla, landbúnaðar og sjávarútvegs vinna að faglegum undirbúningi mála og tryggja að þekking starfsmanna sé nýtt og henni viðhaldið. Fagskrifstofurnar bera ábyrgð á lagaramma og regluverki þeirra málaflokka sem eru á þeirra forræði og vinna í samráði við stofnanir ráðuneytisins.

Stoðskrifstofur fjármála og sjálfbærni tryggja að ávallt séu til staðar stjórnunar- og fjárhagslegar upplýsingar til undirbúnings og stuðnings við ákvarðanatöku hjá ráðuneytinu og stofnunum þess.

Markmiðið þessa stjórnskipulags er að treysta stefnumótun og samræma aðgerðir og vinnubrögð við framkvæmd stefnu ráðuneytisins og ráðherra. Jafnframt felur stjórnskipulagið í sér eflingu á innri starfsemi ráðuneytisins með áherslu á markvissa stjórnun.

Skipurit

 

Skrifstofa landbúnaðar

Hlutverk skrifstofunnar er að skapa skilvirka umgjörð um landbúnaðarframleiðslu og viðskipti með landbúnaðarafurðir. Á skrifstofunni er unnið að greiningum og  stefnumótun með það að markmiði að bæta samkeppnishæfni. Nýsköpun, þróun og sjálfbærni eru í forgrunni. Verkefni skrifstofunnar varða meðal annars  framleiðslu landbúnaðarafurða, framkvæmd búvörusamninga, málefni jarða og landbúnaðarlands, landgræðslu, skógrækt, tollamál, verðlagningu og sölu á búvörum og viðskipti með landbúnaðarafurðir.

Skrifstofan annast m.a. samstarf  á vettvangi EES, EFTA og Norrænu ráðherranefndarinnar.

Helstu verkefni/hlutverk:

  •  Búvörusamningar og búnaðarmál
  • Dýravelferð
  • EES málefni
  • Framleiðsla, verðlagning og sala landbúnaðarafurða
  • Hagrænar greiningar og stefnumótun
  • Jarða- og ábúðarmál
  • Landgræðsla
  • Málefni norrænu ráðherranefndarinnar
  • Skógrækt
  • Tollamál og viðskipti með landbúnaðarvörur
  • Fagleg forysta og samhæfing fyrir eftirfarandi stofnanir/sjóði:
    • Bjargráðasjóður
    • Land og skógur

Starfsfólk skrifstofu landbúnaðar

Skrifstofa matvæla

Hlutverk skrifstofunnar er að skapa skilvirka umgjörð um málefni matvælaöryggis, fiskeldis og dýraheilbrigðis, auk þess að hafa eftirlit með inn- og útflutningi afurða o.fl. Á skrifstofunni er unnið að greiningum og  stefnumótun með það að markmiði að bæta samkeppnishæfni. Nýsköpun, þróun og sjálfbærni er í forgrunni. Verkefni skrifstofunnar varða að auki dýra og plöntusjúkdóma.

Skrifstofan annast m.a. samstarf á sviði EES, EFTA og Norrænu ráðherranefndarinnar.

Helstu verkefni/hlutverk:

  • Dýralæknaþjónusta
  • EES málefni
  • Eftirlit með inn- og útflutningi dýra og plantna og erfðaefna þeirra
  • Eftirlit með sáðvöru og áburði
  • Gjaldtaka vegna fiskeldis
  • Hagrænar greiningar og stefnumótun
  • Heilbrigði dýra og varnir gegn dýrasjúkdómum
  • Heilbrigði plantna, varnir gegn plöntusjúkdómum og yrkisréttur
  • Heilbrigðiseftirlit með framleiðslu, vinnslu, inn- og útflutningi og markaðssetningu matvæla og fóðurs
  • Norræna ráðherranefndin
  • Rannsóknir vegna þarfa fiskeldis
  • Stjórnsýslueftirlit í fiskeldi
  • Fagleg forysta og samhæfing fyrir eftirfarandi stofnanir/sjóði:
    • Fiskeldissjóður
    • MATÍS
    • Matvælasjóður
    • Matvælastofnun
    • Umhverfissjóður fiskeldis

Starfsfólk skrifstofu matvæla

Skrifstofa sjávarútvegs

Hlutverk skrifstofunnar er að skapa sjávarútvegi skilvirkt og ábyrgt starfsumhverfi. Á skrifstofunni er unnið að greiningum og  stefnumótun með það að markmiði að bæta samkeppnishæfni. Nýsköpun, þróun og sjálfbærni er í forgrunni. Verkefni skrifstofunnar varða auk þess fiskvinnslu, markaðssetningu sjávarafurða, veiðigjöld, rannsóknir og eftirlit með nýtingu og verndun lifandi auðlinda hafsins.

Skrifstofan annast m.a. samstarf á sviði EES, EFTA og norrænu ráðherranefndarinnar auk þess að hún annast gerð og framkvæmd fiskveiðisamninga við önnur ríki.

Helstu verkefni/hlutverk:

  • Rannsóknir á fiskistofnum og öðrum lifandi auðlinda hafsins og hafsbotnsins
  • Stjórn á og eftirlit með nýtingu og vernd fiskistofna og annarra lifandi auðlinda hafsins og hafsbotnsins
  • Veiðigjöld í sjávarútvegi.
  • Fiskveiðisamningar við erlend ríki og framkvæmd þeirra
  • Fiskvinnsla og önnur vinnsla úr sjávarfangi
  • Tollamál og viðskipti með sjávarafurðir.
  • Sjávarspendýr
  • Hagrænar greiningar og stefnumótun.
  • EES málefni
  • Norræna ráðherranefndin
  • Fagleg forysta og samhæfing fyrir eftirfarandi stofnanir/sjóði:
    • Hafrannsóknastofnun
    • Fiskistofa
    • Verðlagsstofa skiptaverðs

Starfsfólk skrifstofu sjávarútvegs

Skrifstofa sjálfbærni

Hlutverk skrifstofunnar er að vinna að eflingu sjálfbærni í starfi og stefnumótun málaflokka ráðuneytisins ásamt samþættingu matvælaframleiðslu og umhverfismála.

Skrifstofan er í forsvari fyrir loftslagsmál, lífríkis- og náttúruvernd, hringrásar-  og lífhagkerfi og kemur að mótun stefnu og aðgerða fyrir málaflokka ráðuneytisins.

Helstu verkefni/hlutverk:

  • Aðlögun vegna loftslagsbreytinga
  • Endurheimt vistkerfa
  • Hringrásar- og lífhagkerfi
  • Lífríkis- og náttúruvernd
  • Loftslagsmál
  • Söfnun og miðlun upplýsinga um stöðu og þróun skilgreindra mælikvarða fyrir umhverfismál fyrir málaflokka ráðuneytisins
  • Samþætting umhverfismála við stefnu fyrir málaflokka ráðuneytisins
  • Þátttaka í stefnumótun fyrir alla málaflokka ráðuneytisins
  • Fagleg forysta og samhæfing:
    • Fiskistofa
    • Land og skógur
    • Hafrannsóknastofnun
    • Hagaðilar innan framleiðslugreina
    • Starfshópar og nefndir á sviði framleiðslugreina

Starfsfólk skrifstofu sjálfbærni

Skrifstofa fjármála

Hlutverk skrifstofu fjármála er að styðja við innra starf ráðuneytisins og þróun þess í nánu samstarfi við yfirstjórn. Skrifstofan annast rekstur ráðuneytisins, innkaup, skiptingu á fjárhagsramma ásamt framkvæmd og eftirfylgni fjárlaga. Skrifstofan annast einnig mannauðsmál, innra eftirlit, stoðþjónustu og áætlanagerð. Skrifstofan samræmir framsetningu stefnumörkunar ráðuneytisins á þeim málefnasviðum og í þeim málaflokkum sem hún ber ábyrgð á. Hún hefur umsjón með fjárveitingum til málaflokka sem ráðuneytið ber ábyrgð á og fer með rekstrarlegt eftirlit með stofnunum ráðuneytisins ásamt stefnumótun og árangursstjórnun er þeim við kemur.

Skrifstofan leiðir mannauðsmál og aðstoðar við ráðningar, annast launamál, fræðslu og starfsþróun. Skrifstofan ber ábyrgð á gæðamálum, jafnlaunakerfi, skjalavistun og málaskrá ráðuneytisins ásamt öryggismálum og móttöku gesta. Kostnaðarmat frumvarpa ásamt eftirliti með samningagerð ráðuneytisins heyrir einnig undir skrifstofuna. Skrifstofa fjárlaga, rekstrar og innri þjónustu vinnur náið með yfirstjórn ráðuneytisins að framgangi verkefna sem varða ráðuneytið í heild eða að hluta og styður við starf verkefnahópa sem settir eru á fót og starfa þvert á ráðuneytið.

Starfsfólk skrifstofu fjármála

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Yfirlit

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum