Hoppa yfir valmynd

Ferðaþjónusta

Þjóðhagslegt mikilvægi ferðaþjónustu hér á landi hefur aukist til muna samhliða hröðum vexti greinarinnar. Með auknum fjölda ferðamanna hafa tekjur þjóðarbúsins aukist og ný störf skapast í landinu. Spáð er áframhaldandi vexti í komum erlendra ferðamanna til Íslands. Hröðum vexti fylgja miklar áskoranir en í greininni felast mikil sóknarfæri samfélagsins til aukinnar hagsældar og jákvæðrar byggðaþróunar.

MælaborðStarfsemi stjórnvalda á sviði ferðamála er víðtæk enda er atvinnugreinin í eðli sínu mjög víðfeðm og snertir mörg svið mannlegra athafna. Þannig koma öll ráðuneyti að ferðamálum með einum eða öðrum hætti. Ráðherra ferðamála, iðnaðar og nýsköpunar ber ábyrgð á ferðaþjónustu sem atvinnugrein. Sú starfsemi sem fellur undir atvinnuvega –og nýsköpunarráðuneytið er m.a. starfsemi Ferðamálastofu, Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða og Stjórnstöðvar ferðamála auk rannsókna á sviði ferðamála og  markaðs - og kynningarmála ferðaþjónustunnar. Ýmiss konar önnur starfsemi sem tengist ferðaþjónustu fellur undir málefnasvið sem heyra undir önnur ráðuneyti, s.s. málefni þjóðgarða og friðlýstra svæða, löggæsla og vegagerð.

Sjá einnig:

Síðast uppfært: 5.12.2022
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum