Netöryggisráð
Hlutverk Netöryggisráðs er að vera samstarfsvettvangur stjórnvalda um málefni er snerta net- og upplýsingaöryggi, að fylgja eftir innleiðingu á stefnu stjórnvalda á hverjum tíma og að vera vettvangur miðlunar upplýsinga og samhæfingar aðgerða á sviði net- og upplýsingaöryggis. Netöryggisráð aflar gagna um net- og upplýsingaöryggi, gengst fyrir að gerðar séu kannanir og úttektir á stöðu netöryggis, greinir niðurstöður og stuðlar að því að brugðist verði við þeim með viðeigandi hætti. Jafnframt er Netöryggisráð stjórnvöldum til ráðgjafar í málum er snerta net- og upplýsingaöryggi og getur tekið slík mál til umfjöllunar eftir því sem stjórnvöld eða aðilar ráðsins óska.