Hoppa yfir valmynd
Táknmál

Eitt af einkennum hvers ríkis er lögbundið skipulag. Íslenskur réttur á fyrst og fremst rætur að rekja til laga sem sett eru af Alþingi en einnig fyrirmæla framkvæmdarvaldsins, fyrst og fremst reglugerða. Öll lög og fyrirmæli framkvæmdarvaldsins ber að birta í Stjórnartíðindum. Bakhjarlar réttarreglnanna eru lögregla og ákæruvald sem og dómstólar og að hluta til stjórnvöld sem leysa úr ágreiningi.

Á ábyrgðarsviði dómsmálaráðuneytisins er að birta þær réttarreglur sem gilda hér á landi. Þar falla jafnframt undir stofnanir ríkisins sem annast réttarvörslu, lögregluembættin, Landhelgisgæslan, ákæruvaldið, dómstólar, Fangelsismálastofnun ríkisins, fangelsin og sýslumenn.

Í gildandi fjármálaáætlun heyra verkefni á sviði laga og réttar meðal annars undir eftirfarandi málefnasvið: dómstólar, almanna- og réttaröryggi, réttindi einstaklinga, trúmál og stjórnsýsla innanríkismála.

Lög og réttur

Eitt af einkennum hvers ríkis er lögbundið skipulag. Íslenskur réttur á fyrst og fremst rætur að rekja til laga sem sett eru af Alþingi en einnig fyrirmæla framkvæmdarvaldsins, fyrst og fremst reglugerða. Öll lög og fyrirmæli framkvæmdarvaldsins ber að birta í Stjórnartíðindum. Bakhjarlar réttarreglnanna eru lögregla og ákæruvald sem og dómstólar og að hluta til stjórnvöld sem leysa úr ágreiningi.

Á ábyrgðarsviði dómsmálaráðuneytisins er að birta þær réttarreglur sem gilda hér á landi. Þar falla jafnframt undir stofnanir ríkisins sem annast réttarvörslu, lögregluembættin, Landhelgisgæslan, ákæruvaldið, dómstólar, Fangelsismálastofnun ríkisins, fangelsin og sýslumenn.

Í gildandi fjármálaáætlun heyra verkefni á sviði laga og réttar meðal annars undir eftirfarandi málefnasvið: dómstólar, almanna- og réttaröryggi, réttindi einstaklinga, trúmál og stjórnsýsla innanríkismála

Sjá einnig:

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum