Um 600 börn hafa drukknað í Miðjarðarhafi það sem af er ári
Að minnsta kosti 600 flóttabörn
hafa látist á þessu ári við að reyna að komast yfir Miðjarðarhafið í
leit að betra lífi í Evrópu. Barnaheill - Save the Children hafa tekið
saman gögn sem sýna að tvö börn hafa að meðaltali látist eða horfið á
hverjum degi frá upphafi árs til loka septembermánaðar.
Í
frétt
Barnaheilla á mánudag segir: "Tölurnar eru birtar í tilefni af því að í
dag eru þrjú ár liðin frá því að rúmlega 300 flóttamenn og
hælisleitendur létust í sjóslysi við strendur ítölsku eyjarinnar
Lampedusa.
Meira en 3.500 manns hafa látist í
Miðjarðarhafinu það sem af er árinu, næstum 600 fleiri en á sama
tímabili á síðasta ári. Rúmlega 20.600 flóttabörn hafa komið til Ítalíu
frá upphafi þessa árs, af þeim eru 18.400 ein á ferð.
"Það er óásættanlegt að tvö börn látist eða hverfi á hverjum einasta
degi í Miðjarðarhafi. Alþjóðasamfélagið getur ekki haldið áfram að líta
framhjá þeim hörmungum sem þar eiga sér stað. Við berum öll ábyrgð á því
að vernda börn, hvort sem það er hér á Íslandi eða annars staðar þar
sem þau eru á flótta undan ömurlegum aðstæðum," segir Erna Reynisdóttir,
framkvæmdastjóri Barnaheilla - Save the Children á Íslandi.
"Í dag minnumst við 368 flóttamanna sem
týndu lífi sínu í tilraun til að komast í öruggt skjól í Evrópu. Fyrir
þremur árum lofuðu Evrópuleiðtogar því að aldrei aftur myndi þetta
gerast þegar myndir af skipsflakinu og líkkistum voru birtar í
fjölmiðlum sem vöktu heimsathygli. En síðan þá hafa meira en 10,400
menn, konur og börn týnt lífi eða horfið við að reyna að komast
sjóleiðina til Evrópu," segir Kevin Watkins, framkvæmdastjóri Save the
Children.
Barnaheill - Save the Children hafa unnið að
hjálparstarfi við strendur Ítalíu í rúmlega átta ár, þar sem áhersla
hefur verið lögð á að hjálpa börnum sem eru ein á ferð að fá þá hjálp
sem þau þurfa. Í byrjun september tóku samtökin í notkun björgunarskipið
Vos Hestia sem gert er
út frá Sikiley og er ætlað að bjarga flóttafólki og hælisleitendum í
neyð á Miðjarðarhafi. Skipið hefur nú þegar bjargað meira en 600 manns í
neyð, þar af 85 börnum sem sum eru yngri en fimm ára að aldri.
Söfnunarsími Barnaheilla fyrir sýrlensk börn er 904-1900 fyrir 1.000 krónur."