Tvær flóttafjölskyldur komnar til landsins
Tvær fjölskyldur frá Sýrlandi eru komnar til landsins, en þær eru hluti af hópi flóttamanna sem íslensk stjórnvöld hafa samþykkt að veita hæli hér á landi. RÚV greinir frá.
Þorsteinn Víglundsson félags-og
jafnréttismálaráðherra, Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri
Hveragerðisbæjar og Ásta Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri
sveitarfélagsins Árborgar, skrifuðu undir samning um móttöku fólksins
síðdegis á mánudag.
Fjölskyldurnar hafa samkvæmt frétt RÚV dvalið í
flóttamannabúðum í Líbanon. "Von er á þriðju fjölskyldunni austur 30.
janúar. Þann dag koma 33 flóttamenn. Fimm þeirra fara til Akureyrar og
21 til Reykjavíkur. Um helgina var unnið að því hörðum höndum að gera
íbúðir fjölskyldnanna klárar þannig að allt verði tilbúið í kvöld fyrir
nýju íbúana," segir í fréttinni.
Ljósmynd:Amelia Rule:CARE International
Nánar
Where are Syrian refugees?/ UNDP