Aðstoða á mósambísk stjórnvöld við framkvæmd aðgerðaráætlunar um konur, frið og öryggi
Sendiráð Íslands í Mapútó hefur
skrifað undir samstarfssamning við UN Women í Mósambík. Að sögn
Vilhjálms Wiium forstöðumanns sendiráðsins beinist samstarfið að því að
aðstoða mósambísk stjórnvöld við framkvæmd fyrstu aðgerðaáætlunar sinnar
til að framfylgja ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna nr. 1325 um
konur, frið og öryggi.
Sú ályktun viðurkennir sérstöðu kvenna í
stríði og mikilvægi hlutverks þeirra í friðaruppbyggingu. "Í Mósambík
þar sem borgarastyrjöld ríkti í rúm sextán ár og enn eru róstur öðru
hverju skiptir ályktunin og framkvæmd hennar gríðarlega miklu máli,"
segir Vilhjálmur.
Samstarfsverkefnið nefnist á ensku "Promoting women and girls' effective participation in peace, security and recovery in Mozambique" og jafnréttis-, barna- og félagsmálaráðuneyti Mósambíkur verður helsti samstarfsaðili UN Women.
Lilja Dóra Kolbeinsdóttir verkefnastjóri í sendiráði Íslands segir að meginmarkmið verkefnisins sé að tryggja að ferlar og áætlanir sem stuðla að friði, öryggi og endurreisn í mósambísku samfélagi stuðli að jafnrétti og valdeflingu kvenna og stúlkna sem oft verða útundan í þess háttar ferlum og áætlunum. Verkefnið verður unnið í nokkrum héruðum í fjórum fylkjum Mósambíkur.
"Verkefnið er þannig byggt upp að auðvelt
er að stækka það og fjölga fylkjum og héruðum ef viðbótarfjármagn fæst
frá öðrum framlagsríkjum. Það má hugsa verkefnið sem frumkvöðlastarf,
verkefni sem vísar veg og leggur línur til framtíðar um framkvæmd
ályktunar 1325 í Mósambík," segir Lilja Dóra.
Verkefnið samræmist vel áherslum
alþjóðlegrar þróunarsamvinnu Íslands og ýmsum jafnréttis- og
mannréttindastefnum sem Ísland er aðili að. Verkefnið leggur sitt að
mörkum til Heimsmarkmiðanna um sjálfbæra þróun, ekki síst til markmiðs
nr. 5 um jafnrétti kynjanna og markmiðs nr. 16 um frið og réttlæti.
Myndatexti: Vilhjálmur Wiium forstöðumaður sendiráðs Íslands í Mapútó og Florence Raes staðarfulltrúi UN Women í Mósambík. Ljósmynd: UNWomen
Mozambique, Iceland and UN Women ink deal on women empowerment/ APA