Helen Clark á fundi í utanríkisráðuneytinu
Helen Clark fráfarandi yfirmaður Þróunaráætlunar Sameinuðu þjóðanna (UNDP) til margra ára og fyrrverandi forsætisráðherra Nýja-Sjálands átti á dögunum óformlegan fund með starfsfólki á þróunarsamvinnuskrifstofu utanríkisráðuneytisins, fulltrúum háskóla Sameinuðu þjóðanna hér á landi og fulltrúum Landsnefnda Sameinuðu þjóða stofnana. Helen var hér á landi í tilefni af ársfundi Women Political Leaders. Myndin af Helen Clark og Maríu Erlu Marelsdóttur skrifstofustjóra þróunarsamvinnuskrifstofu var tekin í lok fundarins.